Sjálandsskóli | Langalína 8 | 210 Garðabær | 590 3100 | sjalandsskoli@sjalandsskoli.is


 

 

Heimaþing 2005

Heimaþing maí 2006

Heimaþing apríl 2006

Heimaþing 7. mars 2006

Fulltrúaþing 7. feb. 2006

Fulltrúaþing 30.jan. 2006

Fulltrúaþing 16. sept. 2005

Fulltrúaþing 29. ágúst 2005

 

 

 

Skólaþing


Skólar eru starfsvettvangur stórra hópa nemenda og starfsmanna. Mikilvægt er allir sem í skólanum starfa komi fram af virðingu gangvart sjálfum sér og öðrum og þeir tileinki sér og læri tjáskiptaaðferðir þar sem þeir geta komið skoðunum sínum á framfæri í fjölmenni á uppbyggilegan hátt.

Skólaþing er tvíþættur vettvangur þar sem annars vegar hittast lýðræðislega kjörnir fulltrúar umsjónarhópa á fulltrúaþingi sem myndar nokkurs konar nemendaráð. Hlutverk þeirra er að koma á framfæri þeirri umræðu sem fram hafa komið í umsjónarhópunum, þ.e. umræðuefnin þurfa að hafa hlotið lýðræðislega umræðu og afgreiðslu í umsjónarhópi áður en þau eru kynnt á fulltrúaþingi til afgreiðslu. Á fulltrúaþingi er fjallað um atriði er varða félags-, velferðar- og hagsmunamál nemenda, s.s. skólamáltíðir, aðbúnað í skóla og skólalóð, vettvangsferðir, námsframboð, skóladagatal og skólareglur. Á heimaþingi hittast allir nemendur og starfsmenn á heimasvæði heimaþing sem er samkoma allra þeirra sem starfa saman á heimasvæði. Þegar heimasvæði kemur saman er aðal áhersla á umræðu um samskipti, vinnulag og líðan þeirra sem vinna saman á heimasvæði.

Markmið
Markmið verkefnisins skólaþing er að:
• Þjálfa og þroska lýðræðislega umræðu og þátttöku nemenda í stjórnun skóla
• Efla samskiptahæfni nemenda
• Auka samkennd og styrkja skólamenninguna
• Stuðla að skilningi nemenda á leikreglum lýðræðis, samfélagslegri ábyrgð og margbreytileika mannlífsins.