Í gær fóru nemendur 5. og 6. bekkjar í ferð að Vífilsstaðavatni þar sem fiskifræðingurinn Bjarni Jónsson og Sigurður Hafliðason starfsmaður garðyrkjudeildar Garðabæjar tóku á móti okkur. Þeir leiddu nemendur í allan sannleikann um lífríki vatnsins og lækjarins. Veiddir voru fiskar og hinar ýmsu lífverur vatnsins fangaðar af sprækum nemendum. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við okkur en nemendur stóðu sig með sóma og nutu ferðarinnar þrátt fyrir veðrið. Eftir góða stund við vatnið var svo hjólað í skólann þar sem Bjarni krufði urriða og þeim fiskum sem náðust lifandi var sleppt í fiskabúrið. Í dag voru síðan fleiri fiskar krufðir af nemendum. Þar kom margt fróðlegt fram.
27.9.2007
|