Nemendur í 5.-6. bekk hafa verið í heimilisfræðiviku og í því sambandi fóru nemendur í út í hraun að elda. Nemendum var skipt upp í 8 hópa, 4 hópar suðu pasta, 1 hópur skar niður, 1 steikti, 1 hitaði kakó og 1 tjaldaði og hélt eldi lifandi. Eldað var á gasi fyrir 40 manns ljúffengt spaghetti bolognese. Boðið var uppá kakó með vatni sem hafði verið hitað yfir opnum eldi. Indjánatjaldið fór upp og það var opinn eldur inn í því, mjög kósý. Eins og sjá má á myndunum höfðu allir nóg fyrir stafni og maturinn bragðaðist vel. 11.10.2007
|