7. bekkur fór í stórskemmtilega ferð í Kaldársel og gistu eina nótt. Þau fóru í hellaferð undir leiðsögn Helga skólastjóra, gengu inn í Valaból, spiluðu, undirbjuggju skemmtiatriði fyrir kvöldvöku og að sjálfsögðu var mikill fótbolti spilaður hjá karlþjóðinni. Eftir frumlega kvöldvöku og gamaldags kvöldkaffi var slegið upp diskóteki og sumir fengu að hlusta á krassandi kvöldsögur fyrir svefninn. Um morguninn vöknuðu allir snemma og fengu sér góðan morgunverð og síðan örkuðu allir í hressandi göngutúr í hrauninu í dýrindis veðri.
30.10.2007
|