Í vikunni fóru nemendur í 5.-6. bekk í heimsókn í Þjóðminjasafnið í tengslum við þemað um landnám Íslands. Fjallað var um landnámið og skoðaðar fornleifar sem eru einstakar fyrir Þjóðminjasafnið. Nemendur skoðuðu og snertu eftirgerðir hluta og hlustuðu á frásögn landnámskonu (hljóðstöð í grunnsýningu). Allir nemendur klæddust landnámsbúningum sem merktir voru nöfnum úr Landnámu meðan á heimsókninni stóð. Sjáið fínu landnámsmennina okkar í myndasafni 5.-6. bekkjar.
19.10.2007
|