|
Hrafnhildur sundkennari hefur þetta að segja: "Nemendur 5. og 6. bekkjar eru hreinlega frábær í sundi. Það sem ég segi þeim að synda það synda þau og ég hef varla undan að setja þeim fyrir æfingar og segja þeim hvað þau eiga að gera. Ekkert óþarfa tuð og röfl í þessum krökkum - sankallaðir sundgarpar. Þau eru að synda 750m og meira í hverjum tíma sem er ótrúlega flott finnst mér. Síðustu mínútunum á miðvikudögum eyðum við í sundleiki. Þau eiga það heldur betur skilið fyrir góða frammistöðu í tímum.
Starfsfólk Ásgarðs er líka mjög ánægt með framkomu nemanda sem og aðrir sundgestir sem tala um þessi kurteisu börn".
1.11.2007
|