Björg Óskarsdóttir nemi í tómstundarfræðum í Kennaraháskólanum stóð fyrir skemmtilegri ferð elstu stelpnanna í Sælukoti. Ferðin var hluti af verkefni Bjargar í skólanum. Stelpurnar fóru með Björgu yfir í Jónshús með handavinnudót sem að þær komu með, bæði að heiman og verkefni sem að þær voru að vinna með í textíl hjá Kristínu Guðbrandsdóttur textílkennara. Í Jónshúsi nutu þær félagsskapar og leiðsagnar góðra kvenna. Þetta heppnaðist frábærlega vel og voru stelpurnar sér og skólanum til sóma. Þær einbeittu sér vel og fengu í staðin einkakennslu hjá þaulreyndum handavinnukonum. Vonandi verður þetta upphafið að skemmtilegri samvinnu milli Sjálandsskóla og nágrannanna í Jónshúsi.

1.2.2008

IMG_0733 IMG_0734 IMG_0735 IMG_0736 IMG_0737
IMG_0738 IMG_0739 IMG_0740 IMG_0741 IMG_0742
IMG_0743 IMG_0744      

Til baka