Þriðjudaginn 26. febrúar var stöðvaþjálfun í íþróttum hjá 1. og 2. bekk. Á einni stöðinni spiluðu þau bandý með mjúkum kylfum, á annarri stöðinni var ég að meta þau í sippi, drippli og að kasta og grípa og á þriðju stöðinni var þrautabraut sem tók á þoli, liðleika, styrk, jafnvægi, áræðni og fleiru. Á myndunum eru þau tvö og tvö saman annar fer í gegnum þrautabrautina meðan hinn er að hvetja hann áfram og svo var skipt um hlutverk. Í lok tímans ræddi ég við þau um hvernig þeim hafi liðið þegar félagi þeirra var að hvetja þau áfram og þau voru öll sammála um það að það hafi verið mjög góð tilfinning. Kveðja Hrafnhildur Sævarsdóttir íþróttakennari
26.2.2008
|