Í morgun fóru nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla í Garðakirkju. Ármann æskulýðsfulltrúi tók á móti okkur. Linda í 7. bekk kveikti á kertunum og Ármann fræddi um boðskap jólanna. Helgi skólastjóri flutti jólasögu. Ólafur tónmenntakennari spilaði á gítar og börnin sungu eins og englar marga fallega jólasálma. Nemendur stóðu sig frábærlega vel í þessari ferð þannig að allir áttu notalega stund í kirkjunni.
18.12.2007
|