Sjálandsskóli | Langalína 8 | 210 Garðabær | 590 3100 | sjalandsskoli@sjalandsskoli.is


 

 

Ársskýrsla foreldraráðs 2006-2007

Ársskýrsla foreldraráðs 2005-2006

Erindisbréf foreldraráðs

Umsögn foreldraráðs um skólanámsskrá Sjálandsskóla 2007-2008

Umsögn foreldraráðs um skólanámsskrá Sjálandsskóla 2006-2007

Fundargerðir foreldraráðs
Fundargerðir skólaráðs
Starfsreglur foreldraráðs

Foreldraráð Sjálandsskóla

Foreldraráð Sjálandsskóla, skólaárið 2007-2008
Foreldraráðið skipa:

Guðmundur Guðnason (gg@seifur.is), formaður
Ragný Þóra Guðjohnsen (ragny@simnet.is)
Hjördís Líney Pétursdóttir (hjordis@aat.is)
varafulltrúi Bjarney Björnsdóttir (bjarneyb@hotmail.com)

Í foreldraráði Sjálandsskóla sitja þrír aðalfulltrúar og einn varafulltrúi sem starfar með foreldraráðinu ef kostur er. Kosning í foreldraráð fer fram á aðalfundi að vori. Kosið er til tveggja ára í senn en þess þó gætt að aldrei hætti fleiri en 2 kjörnir fulltrúar á sama tíma.

Samstarf við foreldra
Foreldrar er hvattir til að koma athugsemdum og skilaboðum til nefndarmanna.  Hafa ber í huga að samkvæmt starfsreglum skal foreldraráð einbeita sér að því að skoða stefnu skólans og almennt skipulag og taka mið af heildarhagsmunum nemenda. Hægt er að senda fulltrúum foreldraráðsins tölvupóst með því að smella á nöfnin hér að ofan.

Hlutverk foreldraráðs
Foreldaráð starfar samkvæmt 16. gr. laga um grunnskóla 66/1995. Þar segir:
“Við hvern grunnskóla skal starfa foreldraráð og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Í foreldraráði sitja þrír foreldrar sem ekki eru starfsmenn skólans. Foreldrar við grunnskóla velja fulltrúa í foreldraráð til tveggja ára í senn.
Foreldraráð fjallar um og gefur umsögn til skólans og skólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahaldið, fylgist með að áætlanir séu kynntar foreldrum, svo og með framkvæmd þeirra.
Skólastjóri starfar með foreldraráði og veitir því upplýsingar um starfið í skólanum.”

Starfsemi foreldraráðs
Foreldaráð Sjálandsskóla fundar 9 sinnum á ári eða mánaðarlega yfir vetrartímann.  Á 2-3 þessara funda fundar foreldraráð með skólaráði Sjálandsskóla en tilgangur þess fyrirkomulags er að tengja betur saman starfsfólk skólans og foreldra. Skólaráð skipa skólastjóri, foreldraráð, kennararáð og tveir fulltrúar starfsmanna.
Svæðaráð foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Garðabæjar heldur nokkra fundi yfir veturinn. Í svæðaráðinu sitja formenn foreldraráðanna og foreldrafélaganna ásamt fulltrúa foreldra í skólanefnd og ræða um sameiginleg hagsmunamál. Fulltrúi foreldra í skólanefnd situr tvö ár í senn og skiptast skólarnir á að tilnefna aðila.