![]() |
|
Sjálandsskóli | Langalína 8 | 210 Garðabær | 590-3100 |fax 5903110 | sjalandsskoli@sjalandsskoli.is |
|
|
14. maí 2008 Nýr vefur Sjálandsskóla Nýr vefur Sjálandsskóla og allra skólanna í Garðabæ verður opnaður á morgun. 6. maí 2008 Íþróttadagur Sjálandsskóla
Það var líf og fjör á skólalóðinni og vítt og breitt um bæinn í tilefni af íþróttadeginum. Nemendur höfðu valið sér í ýmsa aldursblandaða hópa. Í boði voru leikir á skólalóð, hjólaferðir, línuskautar og kajakferð. Í byrjun dags voru allir nemendur saman á ýmsum hreyfistöðvum. Í annarri og þriðju lotu var hópskipting. Einn hópur fór á línuskautum að Hofsstaðaskóla. Hjólahópur eldri fór suður í Hafnarfjörð og upp í Áslandshverfi ásamt því að hjóla niður í miðbæ Hafnarfjarðar. Yngri hjólahópurinn hjólaði í Kópavoginn. Kajakhópurinn hjólaði upp að Vífilsstaðavatni þar sem kajakarnir biðu þeirra og þau spreyttu sig á vatninu sem var nokkuð úfið. Þeirra beið heitt kakó á staðnum sem eitt foreldri kom með færandi hendi. Í lok dags var brennó og kýlómót. 30. apríl 2008 Vímuvarnarhlaup Lions
Vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins Eikar var hlaupið í morgun og voru það nemendur í 5.-6. bekk sem tóku þátt. Alma Nylon stúlka ræddi fyrst við nemendur um mikilvægi þess að sneiða hjá vímuefnum. Síðan fóru allir útá battavöll og þar stilltu liðin sér upp ásamt stuðningsmannaliðum. Mjótt var á milli liða en 5.-6. B vann. Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með drengilega keppni. 29. apríl 2008 Esjuganga
Nemendur í 3.-4. bekk hafa verið í þema um Ísland undanfarnar vikur. Í tengslum við það var farið í göngu á Esju. Þau fór þangað með strætó og þurftu að taka 3 strætisvagna hvora leið. Við Esjurætur var fallegt veður en nokkuð hvasst en nemendur voru duglegir að ganga mislangar leiðir. Síðan fengu allir sér nesti og tóku síðan strætó til baka. Þetta voru duglegir krakkar í útivistinni og í strætó voru þau mjög prúð svo eftir var tekið. Sjáið myndir hjá 3.-4. bekk. 28. apríl 2008 Blöðruíþróttir
Í íþróttatíma í síðustu viku var 1. og 2. bekkur í leikjum og að gera æfingar með blöðrur. Blöðrunni var haldið á lofti með ýmsum líkamspörtum og í ýmsum stellingum þar sem nemendur voru einir, tveir og tveir saman eða í stærri hópum. Það var ágætis tilbreyting að gera æfingar með blöðrur í stað þess að nota bolta og það voru fleiri sem gátu notið sín enda ekki á færi allra að halda bolta oft á lofti. Sjáið fleiri myndir hjá 1.-2. bekk. 25. apríl 2008 Umhverfisdagurinn
Í dag er umhverfisdagurinn. Að því tilefni fóru allir nemendur út og hreinsuðu til í nágrenni skólans. Yngstu börnin voru á skólalóðinni, ásamt því að baka brauð og kanna smádýr. 3.-4. bekkur fór út með fjörunni og göngustígana. 5.-6. bekkur fór í kringum lækinn og út með uppfyllingunni útað smábátahöfn. 7. bekkur fór út í Gálgahraun og þar var gríðarlega mikið drasl en þar voru í kringum 50 svartir plastpokar. Það voru duglegir og vinnusamir krakkar sem unnu við að fegra umhverfi skólans og næsta nágrenni í dag með mjög góðum árangri. Í lok skóladags voru grillaðar pylsur. Sjáið myndirnar undir "Myndir úr skólastarfinu". 23. apríl 2008 Listakona í beinni
Þuríður Sigurðardóttir var í beinni útsendingu hjá nemendum í 7. bekk. Þetta var verkefni sem myndlistarkonan Sari Maarit Cedergren var að vinna að í tengslum við kennsluréttindanám sitt við Listaháskóla Íslands í samvinnu við Kristínu Guðbrandsdóttur listakennara. Þuríður var stödd á vinnustofu sinni á Korpúlfsstöðum og nemendur í skólanum. Þau spurðu hana um myndlistina, hún svaraði þeim beint og sýndi þeim síðan vinnustofuna sína og sýnishorn af myndum með vefmyndavélinni. Sjáið myndir á myndasíðu 7. bekkjar. 21. apríl 2008 Krabbagildran
Í dag fóru nokkrir strákar með Sigú niður í fjöru að kíkja í krabbagildruna sem hafði verið í sjónum síðan á föstudag. Í henni leyndust 5 kuðungakrabba eða einbúar sem strákarnir fylgdust með af athygli áður en þeir létu þá í sjávarbúrið. Þar verður svo hægt að fylgjast með þeim áfram. Sjáið myndir úr skólastarfinu. 11. apríl 2008 Kajakklúbburinn
Kajakklúbburinn var að prófa blautbúningana um daginn. Krakkarnir fóru í lækinn og útí sjó. Búningarnir reyndust flestir vel eins og sjá má á myndunum í myndasafninu. Krakkarnir hittast á föstudögum og sigla en í þetta skipti hreinsuðu þau lækinn og þara. 10. apríl 2008 Foreldraheimsóknir - listadagar
Nemendur í 1.-2. bekk og 7. bekk buðu foreldrum sínum í heimsókn í dag. Nemendur í 1.-2. bekk unnu með foreldrum sínum að klippimyndum af þeim sjálfum. Mikill áhugi og gleði ríkti á svæðinu. Nemendur í 7. bekk kynntu nýju ljóðabókina sína Sjálandsljóð og foreldrar lásu upp ljóð úr bókinni. Myndir á myndasíðunni.
|
Myndir úr skólastarfinuMyndir úr 1.- 2. bekkMyndir úr 3.-4. bekkMyndir úr 5.-6. bekkiMyndir úr 7. bekkTónlist
og verkefni nemenda
|
|
|